25.10.04

BINGO á Skjá Einum



Nú hefur hafist þáttaröðin BINGO á Skjá Einum með Villa Naglbít í farabroddi. Hélt ég að þarna væri á ferðinni hundleiðinlegir þættir sambland af Bingo Lotto og Landsins Snjallasti... En vitið menn og sei sei nei. Villi Naglbítur hefur svo sannarlega ekki skotið sig í fótinn. Þetta er ein mesta snilld sem ég hef séð. BINGO spjöldin eru ókeypis og prentast út af www.s1.is. En það er ekki mesta snilldin af öllu. Nei Nei það eru vinningarnir. Hver vill ekki vinna kassa af ORA Grænum Baunum eða 45 kg sekk af hveiti í sambland við 10 Quarashi diska og 5 bíómiða. Einnig getur maður komið í þáttinn og beðið um hvaða hlut sem er gegn því að mynd af hlutnum verði húðflúraður á þig sem er snilld.
Ég bíð spenntur eftir næsta Sunnudegi

Sveinn El. Loftnets........ Vinabær hvað!!!