22.9.05

Klukk frá Bogga


Helvítið hann Boggi klukkaði mig og þá þarf ég að setja fram 5 gagnslausar upplýsingar um mig.

1. Mér leiðist á Akureyri.

2. Ég byrjaði að spila á gítar eftir að ég kom til Akureyrar vegna leiðinda. Nú á ég tvo gítara og langar í einn í viðbót.

3. Ég fór fyrst til útlanda 2002 og þá til Malasíu með millilendingu á brotajárnshaugnum London. Síðan hef ég farið til Ítalíu Danmerkur og Póllands og er á leiðinni aftur til Danmerkur.

4. Ég er miklu fallegri en ég lít út fyrir að vera.

5. Mér finnst þetta klukk afskaplega heimskulegt og leiðinlegt og klukka því engan.

Gjörðu svo vel Boggi njóttu vel.