16.7.05

Veiðiferð með Matta



Við vinnufélagarnir ég og Matti skruppum í veiðiferð í kvöld. Í fyrrihluta túrsins veiddi Matti 4,5 punda kvikindi sem tók 20 mínútur að landa og ég væskilslegan eins punda ræfil sem tók 1 mínútu að landa.
Hins vegar í seinni hluta veiðinnar krækti ég í 5 punda kvikindi sem tók 25 mínútur að landa og 1,5 pund væskil sem var reyndar þrælsprækur og tók 10 mínútur að landa.

Staðan eftir 8 tíma veiðiskap...

Sveinn El Loftnets 3 Urriðar samanlagt 7,5 pund.
Matthías sjómaður 1 Urriði samanlagt 4,5 pund.

RÚST!!!!

Hér má nálgast myndir af aflanum og aflaklónum.
Hér má svo sjá sjódurgin Matthías gera að sínu kvikindi.

Þess má geta að þetta er stærsti fiskur sem ég hef veitt á stöng.

Sveinn El. Loftnets .....Fiskast vel hjá þér????