12.6.05

Kaktus svarar góðvild með óvild



Sá merkilegi atburður átti sér stað á Akureyri fyrr í kvöld að kaktus nokkur í eigu Sveins El. Loftnets og Soffíu S. Loftnets svaraði góðvild þess fyrrnefnda þegar hann var að vökva hann eftir mikla þurrkatíð með því að stökkva á hann og stinga hann margoft í hendina. Stóðu nálarnar í tugatali úr hendi Hr. Loftnets og tók það hann um 15 mínútur að tína þær úr eina og eina í einu.
Kaktusnum var svo launað lambið gráa með því að fá nýjan og stærri pott auk vatnsbyrgða sem innihéldu næringu.
Kaktusinn verður sendur í geðrannsókn.

Sveinn El. Loftnets.....Allt að gerast á Akureyri.